Monday, April 5, 2010

Strákarnir í Basket


















Hood-peysa
Baggy ÍR buxur
Hvítur hlýri (eiginkonumuffari)
Jumpers frá Bobbie Burns
Puma sokkar

Mikill misskilningur er oft á tíðum ríkjandi í heimi karlmannstísku, og einn sá stærsti er að karlmenn eiga það til að vanmeta aðstæður og dressa sig vitlaust fyrir ákveðna atburði.
Nú mun ég sýna eitt lúkk sem virkar fyrir menn þegar þeir eru á leið út í körfu með félögunum.
Þrátt fyrir að fyrir flestum sé þetta casual, en flawless lúkk fyrir körfuboltaleik með félögunum, þá er þetta einnig útpælt. Takið eftir því á myndinni þar sem sýnt er hvað leynist undir peysunni, þá er sýnt að hlýrinn er til staðar, sem er stór hluti af öllu þessu basket lúkki.
Ég læt myndirnar tala sínu máli, og hleyp út þar sem 3 ungir drengir bíða eftir því að ég sýni þeim hvar Davíð og félagar keyptu sér bjössa þegar þeir voru að pre-game-e hérna í Galíu í denn.
Bitches, please.

5. apríl 2010

















5. apríl 2010
Bolur H&M
Buxur Puma
Sokka og undurfata frír, því þannig rúlla ég á frídögum.


Ég hef ákveðið að hefja það frumkvöðla starf að sýna karlmönnum að tíska þarf ekki að vera túttusport. Þar sem starfið hefst á annan í páskum, þar sem fólk er þreytt eftir páskalambið eða erfiða helgi í 101, þá byrja ég á flottum fötum í tjillið. Takið eftir hvernig ég hneppi hvorki upp, né læt kragann á Polo-bolnum niður, þetta er gert til að ná smá "edge" í tjill-lúkkið.
Ennig er krúsjal að menn reimi ekki buxurnar, það kallar á tískuslys.
Fylgist vel með kæru tískuunnendur sem og hatarar næstu daga, þar sem ég mun sýna heiminum hvernig ég klæði mig á hverjum degi.
Það er ekkert einsog flestum sé skítsama, því öll viljið þið jú vita, hvernig ég rúlla.